Stundum bloggar maður því að eitthvað skemmtilegt gerist, stundum ef eitthvað leiðinlegt gerist, stundum bloggar maður “af því bara” og stundum bloggar maður bara alls ekki neitt.
Ég hef allavega ekki haft neitt til þess að blogga um síðastliðnar vikur, að minnsta kosti ekki neitt sem að mér finnst merkilegt.
Svo þar sem að ég er ekki lengur í “útlöndum” og ættingjarnir eru allir heima á íslandi líka, þá minnkar bloggþörfin mjög mikið.
En ég byrjaði að blogga fyrir löngu á annarri bloggsíðu, það var bara svona til að prófa og af því að það var gaman, svo átti ég ættingja í útlöndum sem að voru voða glaðir að geta lesið smá blogg. Síðan flutti ég sjálf til Finnlands og það var ágætt að geta haft samskipti við alla heima í gegn um þetta bloggdóterí.
En núna eru allir komnir heim, flestir sem ég þekki hættir að blogga eða eru mjög lélegir í því þannig að það er ekki hægt að standa mikið í þessu.
Mig langar samt að blogga um eitt sem að kom fyrir mig í dag, vegna þess að það er svolítið leiðinlegt.
Eins og flestir vita þá eigum við Eero von á barni um miðjan Janúar (og ef þið vissuð það ekki þá vitiði það núna
)
Þegar að ég uppgötvaði óléttuna var eiginlega það fyrsta sem ég gerði að bóka flugmiða heim til íslands og staðfesta umsóknina sem ég hafði gert í Háskóla Íslands. Það næsta sem að ég gerði var að tryggja mér vinnu í sumar og biðja Eero að sækja um í Háskólanum líka.
Um leið og ég kom heim fór ég strax út á skrifstofu á Hellissandi og lét flytja lögheimilið mitt aftur heim og hringdi í tryggingarstofnun til að vera viss um að ég væri alveg 100% löglega skráð og sjúkratryggð á Íslandi því að ég var með lögheimilið í Finnlandi áður.
Það reyndist ekkert vandamál.
Nú svo fór ég að hugsa út í fæðingarorlof. Ég vissi að ég yrði að vinna í 2-3 mánuði og svo í skóla næstu 4 mánuðina áður en barnið kæmi í heiminn þannig að ég sendi fyrirspurn til fæðingarorlofssjóðs til að athuga hvernig það kæmi út.
Svarið sem að ég fékk þar var á þessa leið:
“Ef vinna og skóli verða samtals 6 mánuðir þá getur þú átt rétt á fæðingastyrk námsmanna og skilyrðum varðandi námframvindu eru uppfyllt það er 75%-100% nám”
Nú ég var voða ánægð með það, greinilegt að ég gat bara skellt mér í skólann án þess að hafa neinar áhyggjur af því. Ég fengi mínar “fínu” 98 þúsund krónur á mánuði eftir að barnið fæðist (há upphæð ekki satt?).
Svo kom Eero til landsins, fékk kennitölu og skólavist. Svo byrjuðu smá vandræði, tryggingastofnunin í Finnlandi vildi ekki láta hann fá mjög mikilvægt skjal til að vera sjúkratryggður á Íslandi og þeir voru líka með vesen að borga honum námsstyrkinn sem að allir finnskir nemendur hafa rétt á.
Við komum því loks í gegn í síðustu viku að pína út úr þeim helvítis sjúkrastaðfestingarskjalið (sem að ENGIN norðurlönd NEMA Ísland biðja um lengur, þetta á bara að vera sjálfkrafa)
Um leið og við fengum þetta blað kom bréf frá finnsku tryggingarstofnuninni um það að nú væri Eero tryggður á Íslandi og nyti þar með engra réttinda lengur í Finnlandi. Þar með var talið upp fæðingarorlof.
Ég hringdi í fæðingarorlofssjóð til að athuga hvort að hann gæti fengið fæðingarorlof á Íslandi. En nei það kemur ekki til greina því að hann er skráður inn í landið í Ágúst og nær þar með ekki að vera á landinu 6 mánuði fyrir fæðingu barnsins (Heldur bara 5....)
Það var alveg sama hvað ég tautaði og nöldraði, stelpan gaf sig ekki og sagði að þetta væru bara alveg skýrar reglur og ekkert hægt að gera við því.
Jæja fjandinn hafi það hugsaði ég, ég fæ þó allavega minn pening, er það ekki? Og sagði konunni frá mínum aðstæðum. Kemur þá ekki í ljós að ég VERÐ að hafa verið í SAMFELLDU námi EÐA vinnu í amk 6 mánuði.
Frábært.
Hún sagði mér að ég hefði rétt á “fæðingarstyrk lægri” sem er einhverjar 40 þúsund krónur á mánuði út af þessu.
Þannig að þó að ég hefði komið strax til landsins til að tryggja að ég hefði verið í 6 mánuði á landinu áður en barnið fæddist.
Þó að ég hafi unnið á hverjum einasta einasta degi í allt sumar.
Þó að ég sé skráð í 15 eininga (fullt) nám í háskólanum og þó ég myndi fá 10 í öllu (eða bara 5, það er nóg).
Þá fæ ég 40.000 kr á mánuði eftir að barnið er fætt.
Af því að það vantar 2 mánuði upp á að ég hafi verið í skóla í 6 mánuði og það gildir ekki að ég hafi verið í vinnu því að vinnan nær ekki 6 mánuðum heldur. Og ef ég fer enn aftur í tímann til Febrúar-Maí, þá var ég bara á einhverju “skitnu” námsskeiði í skóla í Finnlandi sem að telst ekki með.
Versti hluturinn er samt að vegna þessa svars sem ég fékk frá fæðingarorlofssjóði í sumar þá fór ég í skólann áhyggjulaus. Hefði ég vitað þetta, þá hefði ég að sjálfsögðu haldið áfram að vinna og náð að vinna í 6 mánuði samfleytt.
En þetta er ömurlegasta, svikulasta, versta kerfi sem að ég veit um og ég er gersamlega snarbrjáluð.
Enda hvernig á ég að lifa af á 40 þúsund á mánuði? Leigan ein er 53 þúsund, sem er bara heppni því að ég er á stúdentagörðunum. Ef að Eero fer að vinna og hættir í skóla þá þurfum við að finna nýja íbúð og borga sennilega a.m.k 100-110 þúsund á mánuði í leigu.
Eða þá að ég fer bara í fullt nám með nýfætt barn og treysti á þær 300 þúsund krónur eða svo sem að ég fæ svo loksins. Í júní... og lifi á yfirdrætti þangað til. Fari svo strax að vinna og vinni í allt sumar (og við bæði) og setjum barnið í annara manna hendur 6 mánaða gamalt.
Ég veit ekki hver í andskotanum setti þessar reglur. En ég ætla bara að þakka sá hinum sama fyrir að vera aumingi og hálfviti og ætla bara að segja honum beinlínis að hoppa upp í rassgatið á sér og prófa það að sjá fyrir sér og ungabarni með 40 þúsund krónur á mánuði, þrátt fyrir að hafa verið í vinnu og skóla mestan part af árinu.
Þetta er bara svo ótrúlega svekkjandi þar sem að ég var BÚIN að athuga þetta og fékk svar um að það sem að ég er að gera núna væri allt í lagi og ég fengi minn námsmannastyrk. Ég er svo reið að ég gæti gubbað... eða nei annars, ég ætla ekki einu sinni að eyða orku í að vera reið, það tekur því ekki. Enda er smá möguleiki á að kellingin sem ég talaði við í dag hafi haft rangt fyrir sér, en ef svo er ekki þá er ég samt með bréfið frá hinni og ég get staðfest að ég fékk rangar upplýsingar.
En ef þið heyrið í fréttunum um ófríska konu sem að þurfti að binda niður í spennitreyju og bera út af skrifstofu fæðingarorlofssjóðs á Hvammstanga þá....